Takk fyrir matinn.
Á dögunum las ég að borðbæn samtímans væri instagram-myndin sem margir taka af rétti dagsins og deila með fjölskyldu, vinum, eða kunningjum. Slíkar myndir eru oftar en ekki mjög aðlaðandi – með góðum “filterum” og björtum litum. Hvað á slíkt sameiginlegt með borðbæn?
Sá eða sú sem smellir af mynd fyrir fyrsta bita, tekur tíma til að horfa á matinn, þakka fyrir hann og deilir upplifun sinni með öðrum. Þakklæti og samfélag. Það er inntak borðbænar að þessum skilningi. Á mínu heimili syngjum við oft þegar allir eru sestir. Stundum verður versið hans Hallgríms fyrir valinu:
Þurfamaður ert þú mín sál, þiggur af Drottni sérhvert mál, fæðu þína og fóstrið allt, fyrir það honum þakka skalt.
Aðra daga syngjum við borðbæn frá Argentínu:
Bendice Señor nuestro pan, y da pan a los que tenen hambre, y hambre de justicia a los que tienen pan. Bendice Señor, nuestro pan (Federico J. Pagura).
Í íslenskri þýðingu er hún svona:
Minn Guð, blessa allt okkar brauð. Gef þú öllum þeim sem hungrar brauð þitt en hungur réttlætis þeim sem nóg eiga brauð. Minn Guð, blessa allt okkar brauð (Kristján Valur Ingólfsson).
Hér er þakklæti og samfélag í fyrirrúmi. Við þökkum fyrir matinn og við gerum það saman. Eitt hefur bæst við: brýning um að það er ekki sjálfgefið að hafa nóg að borða og bæn að við megum verða verkfæri réttlætis í þágu þeirra sem búa við órétt. Það er bæði góð bæn og góð borðbæn.
Takk fyrir matinn. Takk fyrir samfélagið. Gerðu mig að verkfæri réttlætis þíns. Amen.
Árni Svanur Daníelsson stýrir samskiptasviði Lútherska heimssambandsins (Lh) sem er samband 148 lútherska kirkna í 99 löndum sem byggja á arfi siðbótar 16. aldar og starfa saman í þágu réttlætis, friðar og sáttagjörðar. Lh sinnir umfangsmiklu hjálparstarfi, þróunaraðstoð og mannréttindavakt auk þess að leiða kirkjur saman á sviði guðfræðitilbeiðslu og boðunar.
Myndatexti: Litríkur hádegisverður á ónefndum veitingastaðnum í Berlín. Ljósmynd: Árni Svanur Daníelsson
Því að svo segir Drottinn Guð, Hinn heilagi Ísraels:
„Fyrir afturhvarf og rósemi munuð þér frelsast,
í þolinmæði og trausti skal styrkur yðar vera.“
En þér vilduð þetta ekki
Því bíður Drottinn þess að sýna yður náð,
þess vegna rís hann upp til að miskunna yður,
því að Drottinn er Guð réttlætisins.
Sælir eru þeir sem á hann vona.
Já, þú þjóð á Síon,
sem býrð í Jerúsalem,
þú skalt ekki gráta lengur.
Hann verður þér náðugur.
Þegar þú hrópar á hjálp
mun hann bænheyra þig.
Verið stöðug í bæninni, vakið og biðjið með þakkargjörð. Biðjið jafnframt fyrir mér að Guð opni mér dyr fyrir orðið og ég geti boðað leyndardóm Krists. Hans vegna er ég nú í böndum. Biðjið að ég megi birta hann eins og mér ber að tala.
Umgangist þá viturlega sem fyrir utan eru og notið hverja stund. Mál ykkar sé ætíð ljúflegt en salti kryddað til þess að þið vitið hvernig þið eigið að svara hverjum manni.
Jesús var að kenna á hvíldardegi í samkundu einni. Þar var þá kona nokkur. Í átján ár hafði hún verið sjúk. Hún var kreppt og alls ófær að rétta sig upp. Jesús sá hana og kallaði hana til sín og sagði við hana: „Kona, þú ert laus við sjúkleik þinn!“ Þá lagði Jesús hendur yfir hana og jafnskjótt gat hún rétt úr sér og lofaði Guð.
En samkundustjórinn reiddist því að Jesús læknaði á hvíldardegi og mælti til fólksins: „Sex daga skal vinna, komið þá og látið lækna ykkur og ekki á hvíldardegi.“
Drottinn svaraði honum: „Hræsnarar, leysir ekki hver ykkar á hvíldardegi naut sitt eða asna af stalli og leiðir til vatns? En þessi kona, sem er dóttir Abrahams og Satan hefur fjötrað full átján ár, mátti hún ekki leyst verða úr fjötrum þessum á hvíldardegi?“ Þegar Jesús sagði þetta urðu allir mótstöðumenn hans sneyptir en allt fólkið fagnaði yfir öllum þeim dýrðarverkum er hann gerði.