Við fengum góðan gest í Grafarvogskirkju í messu í morgun. Það var presturinn dr. Jim Antal sem hefur verið aðgerðasinni í umhverfismálum frá fyrsta Jarðardeginum árið 1970. Séra Antal starfar innan United Church of Christ (UCC) í Bandaríkjunum sem er framsækin kirkjudeild og telur milljón fullorðinna einstaklinga í 5000 söfnuðum. Frá 2006 til 2018 var hann leiðtogi kirkjunnar í Massachusetts fylki. Nú starfar hann sem sérstakur ráðgjafi landsleiðtoga UCC í umhverfismálum.
Jim Antal er mikill eldhugi í prédikun sinni og er sérstaklega kunnur fyrir bækur sínar um mikilvægi afstöðubreytingar í umhverfismálum. Hundruð safnaða um öll Bandaríkin eru um þessar mundir að lesa bók hans, Loftslagskirkja – Loftslagsheimur (Climate Church – Climate World) sem út kom í fyrra. Hann hefur haft mikil áhrif á stefnu United Church of Christ í loftslags- og umhverfismálum og kom hingað til lands til að taka þátt í Arctic Circle ráðstefnunni. Einnig talaði hann á ráðstefnu í Skálholti sem bar yfirskriftina Umhverfissiðbót í þágu jarðar.
Í prédikun sinni í Grafarvogskirkju talaði hann um mikilvægi þess að við tökum hvert og eitt ábyrgð á hegðun okkar gagnvart umhverfinu, en einnig um mikilvægi þess að breyta kerfinu. Að stóru olíufyrirtækin hætti að nýta olíu, gas og kola- auðlindir jarðarinnar og hvernig við þurfum að berjast fyrir réttlæti og standa með þeim sem bera hitann og þungann af loftslagsbreytingunum, sem eru oftast frumbyggjar og þau fátækustu í heiminum. Og hann talaði um mikilvægi þess að segja sannleikann um þessi mál, og láta ekki hagsmunaöfl þagga hann niður, jafnvel með ógnunum og ofbeldi. Sannleikurinn mun gera ykkur frjáls, benti hann á.
Það var mikill fengur að fá þennan merkilega mann til að tala við okkur í Grafarvogskirkju. Á eftir áttum við góða stund í safnaðarheimilinu þar sem við skiptumst á skoðunum og hvöttum hvert annað til dáða. Augu okkar allra eru að opnast fyrir því að við berum öll ábyrgð á að breyta hugarfari okkar og hegðun til að koma í veg fyrir enn meiri loftslagsbreytingar, og kirkjan vill taka þátt í þeirri hugarfarsbreytingu. Kristnar kirkjur um allan heim eru risastór fjöldahreyfing og ná til mikils fjölda fólks og það er mikilvægt að boðskapur okkar sé skýr: Við erum ráðsmenn Guðs á þessari jörð og berum ábyrgð á að skila henni af okkur til komandi kynslóða. Við skuldum börnum og barnabörnum okkar það.
Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir
Þvoið yður! Hreinsið yður!
Fjarlægið illvirki yðar frá augum mínum.
Hættið að gera illt,
lærið að gera gott,
leitið réttarins,
hjálpið hinum kúgaða.
Rekið réttar munaðarleysingjans.
Verjið mál ekkjunnar.
Pétur og Jóhannes gengu upp í helgidóminn til síðdegisbæna. Þá var þangað borinn maður, lami frá móðurlífi, er dag hvern var settur við þær dyr helgidómsins sem nefndar eru Fögrudyr til að beiðast ölmusu af þeim er inn gengu í helgidóminn. Er hann sá þá Pétur og Jóhannes á leið inn í helgidóminn baðst hann ölmusu. Þeir horfðu fast á hann og Pétur sagði: „Lít þú á okkur.“ Hann starði á þá í von um að fá eitthvað hjá þeim. Pétur sagði: „Silfur og gull á ég ekki en það sem ég hef, það gef ég þér: Í nafni Jesú Krists frá Nasaret, statt upp og gakk!“ Og hann tók í hægri hönd honum og reisti hann upp. Jafnskjótt urðu fætur hans og ökklar styrkir, hann spratt upp, stóð í fætur og tók að ganga. Hann fór inn með þeim í helgidóminn, gekk um og stökk og lofaði Guð. Allt fólkið sá hann ganga um og lofa Guð. Menn könnuðust við að hann var sá er hafði setið fyrir Fögrudyrum helgidómsins til að beiðast ölmusu. Urðu þeir furðu lostnir og frá sér numdir af því sem fram við hann hafði komið.
En einn úr mannfjöldanum svaraði honum: „Meistari, ég færði til þín son minn sem er haldinn illum anda svo að hann getur ekki talað. Hvar sem andinn grípur hann slengir hann honum flötum og hann froðufellir, gnístir tönnum og stirðnar upp. Ég bað lærisveina þína að reka hann út en þeir gátu það ekki.“
Jesús svarar þeim: „Þú vantrúa kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá ykkur? Hversu lengi á ég að umbera ykkur? Færið hann til mín.“
Þeir færðu hann þá til Jesú en um leið og andinn sá hann teygði hann drenginn ákaflega, hann féll til jarðar, veltist um og froðufelldi.
Jesús spurði þá föður hans: „Hve lengi hefur honum liðið svo?“
Faðirinn sagði: „Frá bernsku. Og oft hefur illi andinn kastað honum bæði í eld og vatn til að fyrirfara honum. En ef þú getur nokkuð þá sjá aumur á okkur og hjálpa okkur.“
Jesús sagði við hann: „Ef þú getur! Sá getur allt sem trúir.“
Jafnskjótt hrópaði faðir sveinsins: „Ég trúi, hjálpa þú vantrú minni.“
Nú sér Jesús að mannfjöldi þyrpist að. Þá hastar hann á óhreina andann og segir: „Þú daufdumbi andi, ég býð þér, far út af honum og kom aldrei framar í hann.“
Þá æpti andinn, teygði hann mjög og fór en sveinninn varð sem nár svo að flestir sögðu: „Hann er dáinn.“ En Jesús tók í hönd honum og reisti hann upp og hann stóð á fætur.
Þegar Jesús var kominn inn og orðinn einn með lærisveinum sínum spurðu þeir hann: „Hvers vegna gátum við ekki rekið hann út?“
Jesús mælti: „Þetta kyn verður eigi út rekið nema með bæn.“